Fyrir fagmenn

Láttu reynsluna tala fyrir þig

Gott fagmannaspjald hjálpar verkkaupa að sjá hver þú ert, hvað þú kannt og hvers vegna þú ert rétti fagmaðurinn í verkið. Nokkrar vandaðar línur og góðar myndir geta skipt sköpum.

Skoða góð ráð ↓
Fyrstu kynni skipta máli

Meira en nafn og iðngrein

Verkkaupi sér oft marga hæfa fagmenn. Fagmannaspjaldið þitt á að auðvelda honum að taka upplýsta ákvörðun – ekki með hástemmdum loforðum heldur skýrum upplýsingum, raunverulegri reynslu og sýnilegum verkum.

Hugsaðu um spjaldið eins og stafrænt handtak. Það á að vera traust, skýrt og fagmannlegt.

Átta góð ráð

Svona byggir þú upp
traust fagmannaspjald

02

Settu inn prófílmynd

Skýr og nýleg mynd af þér skapar persónuleg tengsl og eykur traust. Veldu mynd þar sem andlitið sést vel og notaðu mynd af þér sjálfum, ekki fyrirtækismerki eða mynd af verki.

03

Nefndu sérhæfinguna

Ertu sérstaklega sterkur í einhverjum verkum? Sérhæfing hjálpar réttu verkkaupunum að finna þig.

04

Sýndu fyrri verk

Veldu skýrar og vel lýstar myndir sem sýna vinnubrögð, frágang og breidd verkefna. Myndir byggja upp traust áður en fyrsta samtalið hefst.

05

Lýstu vinnubrögðunum

Segðu hvað verkkaupi má búast við: skýrum samskiptum, stundvísi, snyrtilegum vinnustað eða nákvæmum frágangi.

06

Veldu verkefnin þín

Taktu fram hvaða verkefni þú sækist eftir og á hvaða svæði þú starfar. Það sparar tíma fyrir báða aðila.

07

Hafðu textann einfaldan

Skrifaðu eins og þú myndir kynna þig í góðu samtali. Stuttar, skýrar setningar virka betur en löng upptalning.

08

Haltu spjaldinu lifandi

Bættu reglulega við nýjum myndum og haltu upplýsingum uppfærðum. Nýleg verk sýna að spjaldið endurspeglar starfsemina í dag.

Textadæmi

Sama reynsla
sögð á betri hátt

Of almennt
„Reyndur smiður sem tekur að sér alls konar verkefni. Hafið samband.“

Textinn segir lítið um reynsluna, sérhæfinguna eða hvernig fagmaðurinn vinnur.

Skýrt og traust
„Ég er húsasmiður með 18 ára reynslu og tek helst að mér vandaðar innréttingar, uppsetningu innihurða og almenna fagsmíði innanhúss. Ég legg áherslu á nákvæm vinnubrögð, skýr samskipti og góðan frágang.“

Nú sér verkkaupinn strax reynsluna, sérhæfinguna og vinnubrögðin.

Myndir sem vinna með þér

Góður frágangur á skilið góða mynd

Myndir þurfa ekki að vera teknar af atvinnuljósmyndara. Hreinsaðu vinnusvæðið, notaðu gott dagsljós og taktu bæði yfirlitsmynd og nærmynd af fráganginum.

  • Sýndu fullbúið verkLokaniðurstaðan á að njóta sín
  • Notaðu gott ljósDagsljós gefur skýrari og trúverðugri myndir
  • Veldu gæði fram yfir magnFimm góðar myndir segja meira en tuttugu óskýrar
  • Fáðu samþykkiEkki birta fólk, heimilisföng eða persónulegar upplýsingar án leyfis
Áður en þú klárar

Gátlisti fyrir gott fagmannaspjald

✓ Skýr og fagleg prófílmynd✓ Reynslan útskýrð með dæmum✓ Sérhæfing og helstu verkefni✓ Starfssvæði tekið fram✓ Myndir af vönduðum verkum✓ Textinn yfirlesinn og uppfærður
Tilbúin(n) að láta verkin tala?

Byggðu upp faglegt
og traust orðspor

Skrá mig sem fagmannAðeins fyrir fagmenn með staðfest réttindi