Gott handverk byrjar á réttum fagmanni

Vantar þig smið?

Skráðu smíðaverkið á einfaldan hátt og fáðu áhuga frá staðfestum húsasmiðum. Berðu saman upplýsingar, umsagnir og einkunnir áður en þú velur.

Frítt fyrir verkkaupaSkráðu verk án kostnaðar
Staðfestir húsasmiðirSveinspróf eða meistararéttindi
Vandað frá upphafi

Rétt handbragð skiptir máli

Hvort sem verkefnið snýst um pall, innréttingar, breytingar eða viðgerðir geturðu skráð það hjá Fagmanninum og fengið áhuga frá staðfestum húsasmiðum.

Þú færð betri yfirsýn, getur skoðað umsagnir og átt bein samskipti við smiðinn áður en þú tekur ákvörðun.

Algeng smíðaverk

Finndu smið
fyrir verkið

01

Nýbyggingar

Húsasmíði og frágangur við nýbyggingar, allt frá burðarvirki að fullbúnu húsnæði.

02

Sumarhús

Smíði sumarhúsa, viðbyggingar, endurbætur og viðhald á frístundahúsnæði.

03

Uppsláttur

Uppsláttur fyrir sökkla, veggi, plötur og önnur steypuverk í nýbyggingum og breytingum.

04

Pallasmíði og útiverk

Nýir pallar, endurnýjun, skjólveggir og önnur smíðaverk utanhúss.

05

Innréttingar

Uppsetning innréttinga, sérlausnir og frágangur inni á heimilum og vinnustöðum.

06

Hurðir og gluggar

Uppsetning, endurnýjun og frágangur á hurðum, gluggum og listum.

07

Veggir og loft

Milliveggir, klæðningar, niðurtekin loft og breytingar á rýmum.

08

Viðgerðir

Viðhald, endurbætur og viðgerðir á timburverki og frágangi.

09

Breytingar á húsnæði

Smíðavinna vegna endurskipulagningar, endurbóta og breytinga á húsnæði.

Einfalt frá upphafi

Svona finnur þú smið

01

Skráðu verkið

Lýstu verkefninu, staðsetningu og helstu óskum. Myndir hjálpa smiðnum að átta sig á verkinu.

02

Fáðu áhuga

Staðfestir húsasmiðir sem sjá verkefnið geta sýnt því áhuga.

03

Berðu saman og veldu

Skoðaðu upplýsingar, umsagnir og einkunnir og hafðu bein samskipti við smiðinn.

Fyrir fagmenn

Ertu húsasmiður?

Fáðu verkefni sem passa við þína iðngrein, haltu utan um samskipti og byggðu upp sterkt orðspor.

Skrá mig sem húsasmið
  • Sjáðu verkefni í húsasmíði
  • Sýndu áhuga á verkefnum sem henta þér
  • Hafðu yfirsýn yfir verkefnin þín
  • Spjallaðu beint við verkkaupa
  • Aðeins fyrir húsasmiði með staðfest réttindi
Algengar spurningar

Gott að vita

Kostar að skrá smíðaverk?

Nei. Það er verkkaupum að kostnaðarlausu að skrá verkefni í appinu.

Hvernig eru réttindi húsasmiða staðfest?

Staðfesting byggist eingöngu á tiltækum opinberum upplýsingum um sveina og meistara á island.is.

Hvaða smíðaverk get ég skráð?

Til dæmis nýbyggingar, sumarhús, uppslátt, pallasmíði, innréttingar, hurðir og glugga, klæðningar, viðgerðir og breytingar á húsnæði.

Velur Fagmaðurinn smið fyrir mig?

Nei. Þú berð sjálf(ur) saman þá húsasmiði sem sýna verkefninu áhuga og velur þann sem hentar þér.

Tilbúin(n) að byrja?

Skráðu smíðaverkið
án kostnaðar

↓Fyrir iPhone og AndroidSækja appiðFrítt að skrá verk fyrir verkkaupa